Umhverfis- og tæknisvið Dalvíkurbyggðar auglýsir til sölu fasteignina Skíðabraut 2, Dalvík

Umhverfis- og tæknisvið Dalvíkurbyggðar auglýsir til sölu fasteignina Skíðabraut 2, Dalvík

Um er að ræða timburhús á steyptum grunni byggt 1943.
Stærð hússins er um 105 m2 og fasteignamat kr. 2.837.000.
Seljandi gerir þá kröfu á kaupanda að húsið verði flutt af lóðinni.
Tilboðum skal skila inn á umhverfis- og tæknisvið Dalvíkurbyggðar, 620 Dalvík eða á netfangið borkur@dalvikurbyggd.is  - merkt Skíðabraut 2, Dalvík

Allar nánari upplýsingar veitir Börkur Þór Ottósson sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs í síma 460 4900 eða á netfangið borkur@dalvikurbyggd.is

Frestur til að skila inn tilboðum er 2. desember 2014 og verða tilboð opnuð á skrifstofu sviðsstjóra sama dag kl. 14:00 að vistöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum.