Tónleikar í Dalvíkurkirkju á laugardaginn

Laugardaginn 11. apríl kl. 16:00 verða þau Kristjana Arngrímsdóttir, söngkona og Daníel Þorsteinsson, píanóleikari með tónleika í Dalvíkurkirkju. Á tónleikunum flytja þau þekktar dægurlagaperlur og einnig lög af diskunum “Þvílík er ástin” og “Í húminu” Miðaverð kr. 1500 (ekki er tekið á móti greiðslukortum).