Fræðslu- og menningarsvið Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir starfsfólki í tímabundin störf við íþróttamiðstöðina á Dalvík. Um er að ræða 2 störf við sumarafleysingar en einnig er óskað eftir kvennmanni til starfa frá vori 2015 út febrúar 2016 í 80% starf.
Helstu störf eru baðvarsla, samskipti við viðskiptavini, sundlaugagæsla, þrif og afgreiðsla.
Gildi sviðsins eru virðing, metnaður og jákvæðni.
Hæfniskröfur:
· Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
· Tuttugu ára eða eldri
· Gott líkamlegt atgervi og geta til að standast hæfnispróf sundstaða
· Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
· Geta til að sinna minniháttar viðhaldi
· Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
· Hreint sakavottorð
Umsóknarfrestur er til og með 26. febrúar nk.
Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.