Þann 22. mars síðastliðinn var tekið sýni úr neysluvatni fyrir íbúa á Árskógssandi, Hauganesi og á Árskógströnd. Þann 24. mars kl. 11:15 var niðurstaðan ljós og sýndi að neysluvatnið er mengað.
Í samráði við heilbrigðiseftirlit er því beint til íbúa að sjóða vatn til beinnar neyslu.
Markvisst er verið að vinna að úrbótum, skolað út stofnæðar og vatnstank og fylgst með vatnsgæðum í samráði við heilbrigðiseftirlit. Einn þáttur í þessu að nota klór til hreinsunar og geta íbúar fundi væga klórlykt á meðan á þessum aðgerðum stendur.
Gefin verður út ný tilkynning þegar ástandið lagast.
Dreifibréf með þessum upplýsingum verður borið í hús á svæðinu.
Vatnsveita Dalvíkurbyggðar