Þann 1. desember síðastliðinn fengu þrjár jarðir í Dalvíkurbyggð vottun um lífræna framleiðslu og voru þær afhentar við hátíðlega athöfn í Bergi menningarhúsi á Dalvík en það er vottunarstofan Tún sem þær veitir. Um er að ræða jarðirnar Hnjúk í Skíðadal, Velli í Svarfaðardal og Krossa 1 á Árskógsströnd. Vottunin er áfangi í þróunarverkefninu “Lífræn framleiðsla í Dalvíkurbyggð” sem Vaxtarsamningur Eyjafjarðar styrkir. Verkefnið er samstarf þriggja bænda í Dalvíkurbyggð, Vottunarstofunnar Túns og Umhverfisráðgjafar Íslands.
Með vottun Túns er staðfest að á hinum þremur vottuðu jörðum séu nú notaðar viðurkenndar lífrænar aðferðir við landnýtingu, aðbúnað og meðferð búfjár. Meðal þess sem bændur þurfa að uppfylla er notkun lífrænna áburðargjafa við ræktun túna og garðlanda, aukið húsrými og áhersla á velferð búfjár, notkun lífrænna fóðurefna, og ítarleg skráning á landnýtingu og búfjárhaldi.
Á jörðinni Hnjúki í Skíðadal stunda Jóhannes Jón Þórarinsson og fjölskylda hans búfjárrækt. Megin áhersla Jóns er á sauðfjárrækt og hrossarækt, en einnig er talsverð skógrækt á landi hans. Á Völlum í Svarfaðardal stunda Bjarni Óskarsson og hans fjölskylda m.a. ræktun á sólberjum, gulrótum, kryddjurtum og ýmsum öðrum nytjaplöntum. En þetta mun vera fyrsta hérlenda býlið sem vottað er til lífrænnar ræktunar á berjum. Þá stunda Snorri Snorrason og fjölskylda hans fjölbreytta búfjárrækt á eignarjörð sinni Krossum 1 á Árskógsströnd og á leigujörðinni Stóru-Hámundarstöðum. Snorri leggur megin áherslu á sauðfjárrækt og eldi nautgripa til kjötframleiðslu. Gera má ráð fyrir að hinir nýju vottunarhafar ljúki aðlögun á árunum 2012-2014 og að á þeim árum taki að berist þaðan vottaðar lífrænar afurðir á markað.
Með þessari vottun eru samtals fjórar jarðir í Dalvíkurbyggð vottaðar til lífrænnar landnýtingar og framleiðslu, en fyrir nokkrum árum hlaut jörðin Klængshóll í Skíðadal slíka vottun.
Þróunarverkefnið “Lífræn framleiðsla í Dalvíkurbyggð”
Vottunin er áfangi í þróunarverkefninu “Lífræn framleiðsla í Dalvíkurbyggð” sem Vaxtarsamningur Eyjafjarðar styrkir. Verkefnið felst í því að styðja lífræna framleiðslu á afmörkuðu landsvæði með fræðslu, ráðgjöf og myndun þyrpingar framleiðenda sem hafi stuðning af verkefninu og landfræðilegri nálægð hver við annan. Tilgangurinn er að auka verðmætasköpun, bæta afkomu bænda og þjóna hinum ört vaxandi lífræna markaði. Verkefnið er samstarf þriggja bænda í Dalvíkurbyggð, Vottunarstofunnar Túns og Umhverfisráðgjafar Íslands. Verkefnisstjóri þess er Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunar-fræðingur og framkvæmdastjóri Umhverfisráðgjafar Íslands.
Stefán Gíslason verkefnisstjóri segist binda miklar vonir við að þetta verkefni verði öðrum til vitnis um það hvernig lífræn framleiðsla getur bætt afkomu bænda og stutt við byggðaþróun í dreifbýli.
Lífræn framleiðsla á Íslandi
Hér á landi stunda nú að jafnaði nærri 70 aðilar vottaða lífræna ræktun, vinnslu lífrænna hráefna og söfnun náttúruafurða. Þessir aðilar framleiða nokkur hundruð tegundir vottaðra afurða fyrir markað hérlendis og í vaxandi mæli einnig til útflutnings.
Vottaðar lífrænar afurðir og náttúruafurðir hafa þá sérstöðu á markaði að allur ferill þeirra, frá ræktun eða söfnun hráefna, til pökkunar í neytendaumbúðir eða afhendingar í lausu, er undir eftirliti óháðs aðila, þ.e. vottunarstofu sem fylgist með því að uppruni og meðferð afurðanna sé í samræmi við alþjóðlegar og íslenskar kröfur um lífræna framleiðslu.
Vottunarstofan Tún hóf vottun lífrænna afurða á Íslandi árið 1996 og í Færeyjun árið 2006. Síðan þá hafa yfir 90 bændur og fyrirtæki hlotið vottun. Auk þess vottar Tún nú framleiðslu átta fyrirtækja á náttúruvörum og aðföngum til lífrænnar framleiðslu.