Svavar Örn Hreiðarsson íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2017
Í tilefni lýsingu á Íþróttamanni Dalvíkurbyggðar bauð íþrótta- og æskulýðsráð til mannfagnaðar fimmtudaginn 4. janúar í Bergi.
Tilnefndir til Íþróttamanns Dalvíkurbyggðar 2017 voru þau Andrea Björk Birkisdóttir (skíði), Amalía Nanna Júlíusdóttir (sund), Amanda Guðrún Bjarnadóttir (golf), Ingvi Örn Friðriksson (kraflyftingar), Svavar Örn Hreiðarsson (hestar) og Viktor Hugi Júlíusson (frjálsar)
Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2017 er Svavar Örn Hreiðarsson hestamaður hjá Hestamannafélaginu Hring.
Ástæða tilnefningar frá Hestmannafélaginu Hring var rökstudd með eftirfarandi hætti:
Svavar Örn hefur verið í fremstu röð á kappreiðarbrautinni undanfarin ár og sló ekki slöku við þetta árið enda var markmið hans að komast á HM í Hollandi með Heklu frá Akureyri og þangað komst hann þó leiðin hafi ekki verið bein né greið. En veltan sem þau tóku saman í sumar Svavar og Hekla, er fyrir löngu orðin heimsfræg. Flestir töldu að þar með væri draumurinn búinn en svo var aldeilis ekki Svavar lætur ekkert stoppa sig hvorki byltur né sjúkdóm sinn MS og hélt áfram að keppa og uppskar það sem stefnt var að, að komast í landsliðið og á HM í Hollandi.
Besti tími ársins hjá Svavari í 100 mtr flugskeiði var á Heklu 7,25 sek, einnig náði hann góðum árangri á Flugari eða 7,78 sek. Í 250 mtr skeiði á Svabbi best á árinu 22,68 sek á Heklu og á Þyrli á hann 23,71 sek.
Á stöðulista FEIF (heimsstöðulisti) eru Svavar og Hekla í 2 sæti með meðaltímann 7,45sec
Íslandsmeistaratitlar (eða sambærilegt, t.d. landsliðsúrtak)
Svavar keppti á íslandsmótinu í 100mtr. skeiði á Heklu og urðu þau þar í öðru sæti og á úrtökumóti fyrir HM urður þau sigurvegarar en sá árangur ásamt góðum árangri á öðrum mótum varð til þess að Svavar komst í landsliðið með Heklu og fóru þau á Heimsmeistaramót íslenska hestsins í Hollandi í ágúst og kepptu í skeiði. Þar enduðu þau í 3ja sæti í 100mtr. skeiði og 10 sæti í 250mtr. skeiði.
Aðrir titlar / sigrar / mót
Svavar var mjög duglegur að keppa á árinu og árangur hans í stuttu máli er:
10 sinnum náði hann í fyrsta sætið
9 sinnum náði hann öðru sæti
5 sinnum náði hann þriðja sætinu
Íþrótta- og æskulýðsráð óskar öllum þeim sem tilnefndir voru til hamingju með tilnefningar og Svavari Erni til hamingju með að vera Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2017.