Haldið verður leikjanámskeið fyrir börn í Dalvíkurbyggð fædd 2010-2015
Námskeið verður fyrir árgang 2010-2011 frá 4.-8. Júlí. Það verður auglýst síðar.
Það eru tvö eins námskeið alla dagana, annað frá kl. 10-12 og hitt frá kl. 13-15. Namskeiðin eru eins fyrir og eftir hádegi og takmarkaður fjöldi sem kemst að í hvort námskeið. Ekki er hægt að ská sig bæði fyrir og eftir hádegi.
- Árgangur 2014-2015 – tvær vikur:
- Árgangur 2012-2013 – Tvær vikur
Þátttökugjald er kr. 4.000 hverja viku (8.000 fyrir báðar vikurnar) veittur er 20% systkinaafsláttur.
Umsjón með námskeiðinu hefur Gísli Rúnar Gylfason, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi.
Árgangur 2014-2015
Fyrri vika (7.-10. júní)
- júní: Kynning á leikjanámskeiðinu og farið í skemmtilega leiki.
- júní: Draugasögur á bókasafni (spila, lita, myndasögur).
- júní: Ratleikur í skógreitnum við Brekkusel (Böggur) og bakaðar pönnukökur upp í reit.
- júní: Fjöruferð og sandkastalakeppni.
Seinni vika (13.-16. júní)
- júní: Klifurveggurinn og Pógó kennt í félagsmiðstöðinni
- júní: Heimsókn á Byggðasafnið, léttar veitingar í garðinum leikir ofl.
- júní: Óvissuferð
- júní: Grillveisla og sund
Árgangur 2012-2013
Fyrri vika (20.-23. júní)
- júní: Kynning á leikjanámskeiðinu og farið í skemmtilega leiki.
- júní: Draugasögur á bókasafni (spila, lita, myndasögur).
- júní: Fjöruferð og sandkastalakeppni
- júní: Leikjadagur á bókasafninu og gömlu góðu útileikirnir.
Seinni vika (27.-30. júní)
- júní: Klifurveggurinn og Pógó kennt í félagsmiðstöðinni
- júní: Ratleikur í skógreitnum við Brekkusel (Böggur) og bakaðar pönnukökur upp í reit.
- júní: Heimsókn á Byggðasafnið, léttar veitingar í garðinum leikir ofl.
- júní: Grillveisla og sund.
Athugið að æskilegt er að taka með sér nesti og verið klædd eftir veðri.
Skráning fer fram í gegnum Sportabler: https://www.sportabler.com/shop/dalvikurbyggd/namskeid/
Athugið að ekki er hægt að bóka báðar vikur í einu, gera þarf tvær bókanir ef þið viljið báðar vikurnar.
Mæting við Víkurröst alla dagana.
Dagkrá getur breyst með tilliti til veðurs.
Allar nánari upplýsingar veitir Gísli Rúnar Gylfason, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi.
gislirunar@dalvikurbyggd.is
863-4369