Fræðslu- og menningarsvið Dalvíkurbyggðar auglýsir laus störf flokksstjóra vinnuskóla. Flokksstjórar vinnuskóla vinna náið með umhverfis- og tæknisviði Dalvíkurbyggðar og geta því einnig þurft að sinna störfum á því sviði. Gildi sviðsins eru virðing, metnaður og jákvæðni.
Starfstími er frá 1. júní – 14. ágúst 2015
Hæfniskröfur:
· Uppeldismenntun eða reynsla af störfum með börnum og unglingum er kostur.
· Tuttugu ára eða eldri.
· Stjórnunarhæfileikar og skipulagsfærni sem og góð fyrirmynd í leik og starfi.
· Góð samskiptahæfni og áhugi á jafnréttismálum í víðum skilningi.
· Áhugi á útivinnu og umhverfismálum.
· Bílpróf.
· Hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur er til og með 26. febrúar nk.
Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.