Dalvíkurbyggð óskar eftir að ráða metnaðarfulla og drífandi starfsmenn til starfa í skammtímavistuninni Skógarhólum frá 1. september 2018. Um er að ræða 10-30 % vaktavinnu.
Umsóknarfrestur er til og með 25. júní 2018.
Starfssvið:
- Umönnun og þjálfun fyrir einstaklingana sem nýta sér þjónustuna hverju sinni.
Hreint sakavottorð.
Menntun- og/eða hæfniskröfur:
- Áhugi og færni til að starfa með fólki
- Mikilvægir eiginleikar eru jákvæðni, ábygðarkennd, hlýlegt viðmót, sveiganleiki, samviskusemi, umhyggja og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Umsækjandi þarf að geta talað íslensku
- Frumkvæði í starfi og geta til að vinna sjálfstætt
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að senda umsóknir á netfangið hildurbj@dalvikurbyggd.is. Umsóknum skal fylgja starfsferilsskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Móttaka umsókna verður staðfest með tölvupósti. Valið verður úr hópi umsækjenda á grundvelli viðtala og/eða framlagðra gagna. Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum. Laun skv. kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.
Upplýsingar um starfið gefur Hildur Birna Jónsdóttir í síma 861 6602 eða á hildurbj@dalvikurbyggd.is