Dalvíkurbyggð óskar eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi starfsmann til starfa í skammtímavistuninni Skógarhólum frá miðjum mars til 1. des 2017. Um er að ræða 40 % vaktavinnu, ca. önnurhver helgi, kvöld og næturvaktir.
Umsóknarfrestur er til og með 7. mars.
Starfssvið:
- Umönnun og þjálfun fyrir einstaklingana sem nýta sér þjónustuna hverju sinni.
Hæfniskröfur:
- Reynsla og áhugi á starfi með börnum og ungmennum.
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
- Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
- Hreint sakavottorð.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að senda umsóknir á netfangið hildurbj@dalvikurbyggd.is . Umsóknum skal fylgja starfsferilsskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfi. Móttaka umsókna verður staðfest með tölvupósti. Valið verður úr hópi umsækjenda á grundvelli viðtala og/eða framlagðra gagna. Við ráðningu er jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum. Vakin er athygli á að þörf er á körlum til starfa á verksviðinu. Laun skv. kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.
Upplýsingar um starfið gefur Hildur Birna Jónsdóttir í síma 8616602 eða á hildurbj@dalvikurbyggd.is