Starfið er hlutastarf sem felur í sér að mæta á æfingar og stunda nám við Brunamálaskólann auk útkalla slökkviliðsins við slökkvistörf, mengunaróhöpp og björgun vegna umferðaslysa.
Inntökuskilyrði
- Hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigður, reglusamur og háttvís, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki haldinn lofthræðslu eða innilokunarkennd.
- Hafa aukin ökuréttindi til að stjórna vörubifreið
- Hafa iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun og reynslu.
- Standast þrekpróf slökkviliðsmanna.
Heimilt er að víkja tímabundið frá skilyrðum
Umsækjendur þurfa að hafa fasta búsetu og atvinnu í Dalvíkurbyggð.
Kynningarfundur verður haldinn á Slökkvistöðinni fimmtudaginn 19. mars kl 20:00
Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta, jafnt konur sem karlar, og kynna sér starf slökkviliðsmanns.
Nánari upplýsingar gefur slökkviliðsstjóri í síma 897 1581 eða slokk@dalvikurbyggd.is