Næstu viku, það er 17. til 22. október er fólki boðið að mæta í skipulagða þrek-, þol- og boltatíma án endurgjalds.
Mögulegt er að kaupa sér kort í framhaldinu, mánaðarkort á 7.500 kr. , þriggja mánaða á 20.000 kr., sex mánaða á 28.000 kr. og árskort á 45.000 kr. en þessi kort gildi einnig í rækt og sund. 50% fjölskylduafsláttur á árskortum.
Lagt er upp með þessa tímatöflu en áskilin réttur til að fella niður tíma ef mæting er slök.
Mánudagar
Kl. 06:20 – 07:20 Þrektími
Kl. 16:15-17:15 Þrektími
Þriðjudagar
Kl. 17:15 – 18:15 Stangastuð
K. 18:15-19:15 Boltatími
Miðvikudagar
Kl. 06:20 – 07:20 Þrektími
Kl:16-15-17:15 Þrektími
Fimmtudagar
Kl. 17:15 – 18:15 Stangastuð
Kl. 18:15-19:15 Boltatími
Föstudagar
Kl. 06:20 – 07:20 Þrektími
Kl. 16:15-17:15 Þrektími
Laugardagar
Kl. 10:10 – 11:10 Stangastuð
Stangastuð er markviss og fjölbreytt styrktarþjálfun sem fer þó aðallega fram með lóðum og stöngum. Í þrektímum eru fjölbreyttar þol- , þrek- og styrktaræfingar og Boltatímarnir eru rólegir tímar sem reyna á alla vöðvatíma.
Við viljum sérstaklega koma því á framfæri að tímarnir henta bæði körlum og konum en við höfum saknað karlmanna sérstaklega.
ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐIN S: 466-3233