Leikskólinn Krílakot í Dalvíkurbyggð auglýsir eftir leikskólakennurum/leiðbeinendum í eftirtaldar stöður:
- Leikskólakennari/leiðbeinandi 100% starf
- Leikskólakennari/leiðbeinandi 75% starf
Hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun
- Jákvæðni og sveigjanleiki
- Vilji til að læra og tileinka sér starfshætti leikskólans
- Lipurð og hæfni í mannlegum samskipum
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi um fræðslu barna og velferð þeirra
- Samviskusemi – Snyrtimennska - Stundvísi
Sótt er um á Mínum síðum á heimasíðu Dalvíkurbyggðar www.dalvikurbyggd.is
Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að framvísa sakavottorði ef til ráðningar kemur.
Umsóknarfrestur er til 9. janúar 2018.
Upplýsingar veitir: Guðrún H. Jóhannsdóttir leikskólastjóri Krílakots í síma 460-4950 eða á netfanginu gudrunhj@dalvikurbyggd.is.
Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar!
Sæki enginn leikskólakennari um verður ráðið í stöðuna með tilliti til menntunar og fyrri starfsreynslu.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Í Krílakoti eru börn á aldrinum 9 mánaða - 6 ára. Deildirnar eru fimm og heita Skýjaborg, Sólkot, Mánakot, Kátakot og Hólakot. Haustið 2010 tók Krílakot sín fyrstu skref í átt að innleiðingu Uppeldi til ábyrgðar – uppbygging sjálfsaga sem er hugmyndafræði sem miðar að því að ýta undir ábyrgðarkennd og sjálfstjórn barna og unglinga og þjálfa þau í að ræða um tilfinningar og átta sig á þörfum sínum. Aðferðin er kennd við Diane Gossen frá Kanada, en hún hefur þróað aðferðina og kennt hana víða um heim. Í Krílakoti hafa einnig verið unnin fjölmörg þróunarverkefni og má þar nefna verkefni tengd lestri, stærðfræði, fjölmenningu og útikennslu.