Laust til umsóknar - umsjónarkennari á eldra stigi Árskógarskóla

Laust til umsóknar - umsjónarkennari á eldra stigi Árskógarskóla

Árskógarskóli auglýsir eftir umsjónarkennara fyrir 4.-7. bekk (100%) frá og með 1. september 2022. Næsti yfirmaður er deildarstjóri skólans.

Árskógarskóli er samrekinn leik- og grunnskóli með 18 börn á leikskólastigi og 29 nemendur í 1. – 7. bekk. Einkunnarorð skólans eru: Gleði – Virðing – Þrautseigja. Í grunnskólanum er samkennsla í tveimur umsjónarhópum og ein deild í leikskólanum. Mikið samstarf er á milli skólastiga. Skólinn vinnur eftir aðferðum Uppbyggingarstefnunnar og Byrjendalæsis. Lögð er áhersla á snemmtæka íhlutun í stuðningskennslu og koma til móts við ólíkar þarfir nemenda. Skólinn er Grænfánaskóli og leggur áherslu á notkun snjalltækja í kennslu.

 

Starfssvið og helstu verkefni:

  • Vinnur samkvæmt skólanámskrá, kennsluáætlunum og innra mati.
  • Undirbýr kennsluáætlanir og endurmat.
  • Fylgist með námi og þroska allra nemenda sinna og leitast við að skapa kennsluaðstæður sem eru hvetjandi til náms, vinnusemi og þroska.
  • Foreldrasamstarf
  • Hefur umsjón með námshóp og heimastofu.

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
  • Starfsreynsla á grunnskólastigi.
  • Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Áhugi á samkennslu.
  • Áhugi á notkun tækni í skólastarfi.
  • Hreint sakavottorð.

Umsóknarfestur er til og með 26. ágúst 2022.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.

Sótt er um í gegnum Íbúagátt Dalvíkurbyggðar (dalvikurbyggd.is). Umsókn skal fylgja kynningarbréf og ferilskrá.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Frekari upplýsingar veitir Friðrik Arnarson, skólastjóri í síma 460 4983 eða í netpósti fridrik@dalvikurbyggd.is.

Dalvíkurbyggð er tæplega 1900 manna sveitafélag við Eyjafjörð. Þar er blómlegt atvinnulíf, öflugt menningarlíf og aðstaða til íþróttaiðkunar framúrskarandi.

Umhverfið er sérlega fjölskylduvænt og aðstæður til útivistar með besta móti.