Eigna- og framkvæmdadeild auglýsir eftir öflugum einstaklingi í almennt starf (100%) á Eigna- og framkvæmdadeild. Starfið heyrir undir Framkvæmdasvið Dalvíkurbyggðar.
Eigna- og framkvæmdadeild Dalvíkurbyggðar er hluti af Framkvæmdasviði sveitarfélagsins. Deildin gegnir veigamiklu hlutverki í sveitarfélaginu í þjónustu við íbúa og stofnanir sveitarfélagsins. Eigna- og framkvæmdadeild starfar með öðrum starfsmönnum Framkvæmdasviðs við að ná markmiðum sviðsins og sveitarfélagsins sem best.
Helstu verkefni:
- Umhirða og viðhald svæða sveitarfélagsins.
- Þjónusta, umsjón og viðhald fasteigna og eigna sveitarfélagsins.
- Ýmis konar tilfallandi verkefni jafnt utan sem innanhúss.
- Umsjón, eftirlit og samskipti við verktaka varðandi ýmis konar verkefni.
- Ýmis önnur fjölbreytt tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi æskileg s.s. iðnmenntun eða garðyrkjumenntun.
- Þekking og reynsla af sambærilegum verkefnum.
- Gott vald á íslenskri tungu í ræðu og riti.
- Ökuréttindi.
- Vinnuvélaréttindi kostur.
- Rík þjónustulund, jákvæðni og góð samskiptahæfni.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Skipulagshæfni og nákvæmni.
- Hæfni til að aðlagast breyttum aðstæðum.
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir sviðsstjóri Framkvæmdasviðs Bjarni D. Daníelsson; bjarnidan@dalvikurbyggd.is eða Helga Íris Ingólfsdóttir, deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar; helgairis@dalvikurbyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 19. ágúst 2022. Umsóknum um starfið skal skila inn rafrænt í gegnum íbúagátt á heimasíðu Dalvíkurbyggðar. Við hvetjum áhugasama til að sækja um óháð kyni og uppruna.
Umsóknum skal fylgja greinargóð náms- og starfsferilsskrá auk staðfest afrit af prófskírteinum. Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Dalvíkurbyggð er tæplega 1900 manna sveitafélag við Eyjafjörð. Þar er blómlegt atvinnulíf, öflugt menningarlíf og aðstaða til íþróttaiðkunar framúrskarandi.
Umhverfið er sérlega fjölskylduvænt og aðstæður til útivistar með besta móti.