Fræðslu- og menningarsvið Dalvíkurbyggðar auglýsir laust hluta starf við félagsmiðstöðina Týr
Starfstími er frá byrjun september – 31. maí.
Hæfniskröfur:
· Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur
· Metnaðarfullur í starfi og hæfni til að vinna í hóp
· Hæfni í mannlegum samskiptum
· Frumkvæði og þörf til að ná árangri
· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
· Reynsla af vinnu með börnum og ungmennum er kostur
· Hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur er til og með 30. ágúst nk.
Nánari upplýsingar veitir Gísli Rúnar Gylfason, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar. Umsókn ásamt ferilskrár og kynningarbréf skulu send rafrænt á
gislirunar@dalvikurbyggd.is eða skilað til ritara í Ráðhúsinu á Dalvík.