Dalvíkurskóli leitar að öflugu fólki í eftirtaldar stöður frá og með 1. ágúst 2015:
- Dönskukennara
- Sérkennara á unglingastigi
- Þroskaþjálfa í 60% starf
Hæfniskröfur:
- Grunnskólakennarapróf/Þroskaþjálfapróf
- Tilbúinn að vinna eftir fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum
- Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur
- Hefur frumkvæði og metnað í starfi og getu til að vinna í teymi
- Hæfni í mannlegum samskiptum og nær vel til barna
- Tilbúinn að takast á við fjölbreyttar áherslur í skólastarfi
- Til viðbótar þurfa umsækjendur um stöðu sérkennara að hafa viðbótarmenntun í sérkennslufræðum og geta tekið að sér verkefnastjórn og umsjón með sérkennslu á unglingastigi.
Umsóknarfrestur er til 20. maí 2015
Upplýsingar gefur Gísli Bjarnason, skólastjóri Dalvíkurskóla á netfangið gisli@dalvikurbyggd.is eða í símum 460 4980 og 863 1329.
Umsókn ásamt ferilskrá skal sent á netfangið gisli@dalvikurbyggd.is
Heimasíða skólans er www.dalvikurbyggd.is/dalvikurskoli
Dalvíkurskóli er 240 nemenda grunnskóli. Einkunnarorð skólans eru þekking, færni, virðing og vellíðan. Skólinn leggur áherslu á snemmtæka íhlutun í námi nemenda. Skólastarfið byggist á teymiskennslu kennara. Í skólanum er m.a. unnið eftir kennsluaðferðum Byrjendalæsins, Orð af Orði og Töfraheimi stærðfræðinnar (stærðfræðiverkefni tengd reynsluheimi nemenda með áherslu á verklega vinnu). Dalvíkurskóli flaggar Grænfánanum. Í Dalvíkurskóla er lögð áhersla á að starfsfólki líði vel í starfi og þar er jákvæðni höfð að leiðarljósi. Allir skólar í Dalvíkurbyggð starfa eftir Uppbyggingastefnunni.