Lausar stöður við Dalvíkurskóla

Dalvíkurskóli leitar að öflugu fólki í eftirtaldar stöður frá og með 1. ágúst 2015.

Dönskukennara - Sérkennara á unglingastigi - Umsjónakennara - Þroskaþjálfa

Hæfniskröfur:

  • Grunnskólakennarapróf/Þroskaþjálfapróf
  • Tilbúinn að vinna eftir fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum
  • Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur
  • Hefur frumkvæði og metnað í starfi og getu til að vinna í teymi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og nær vel til barna
  • Tilbúinn að takast á við fjölbreyttar áherslur í skólastarfi

Til viðbótar þurfa umsækjendur um stöðu sérkennara að hafa viðbótarmenntun í sérkennslufræðum og geta tekið að sér verkefnastjórn og umsjón með sérkennslu á unglingastigi.

Dalvíkurskóli er 240 nemenda grunnskóli. Einkunnarorð skólans eru þekking, færni, virðing og vellíðan. Skólinn leggur áherslu á snemmtæka íhlutun í námi nemenda. Skólastarfið byggist á teymiskennslu kennara. Í skólanum er m.a. unnið eftir kennsluaðferðunum Byrjendalæsi, Orð af orði og Töfraheimur stærðfræðinnar (stærðfræðiverkefni tengd reynsluheimi nemenda með áherslu á verklega vinnu). Dalvíkurskóli flaggar Grænafánanum. Í Dalvíkurskóla er lögð áhersla á að starfsfólki líði vel í starfi og þar er jákvæðni höfð að leiðarsljósi. Allir skólar í Dalvíkurbyggð starfa eftir Uppbyggingastefnunni.

Umsóknarfrestur er til 27. apríl 2015.

Upplýsingar gefur Gísli Bjarnason, skólastjóri Dalvíkurskóla, á netfanginu gisli@dalvikurbyggd.is eða í símum 460 4980 og 863 1329.

Umsókn ásamt ferliskrá skal senda á netfangið gisli@dalvikurbyggd.is