Samkvæmt reglum Dalvíkurbyggðar um kjör á íþróttamanni ársins skal fara fram íbúakosning sem gildir á móti kosningu aðal- og varamanna í íþrótta- og æskulýðsráði. Kosning fer fram með þeim hætti að allir sem eru orðnir 15 ára geta kosið og er það gert í gegnum Mína Dalvíkurbyggð.
Þú byrjar á að kynna þér upplýsingar um tilnefnda aðila hér.
Síðan ferð þú inn á íbúagátt Dalvíkurbyggðar og kýst þann aðila sem þú telur eiga skilið að hljóta titilinn „íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2019“.
Þú kemst inn á íbúagáttina með því að smella hér.
Hægt verður að kjósa um íþróttamann ársins til og með sunnudagsins 12. janúar 2020.
Samanlögð kosning íbúa og fulltrúa í íþrótta- og æskulýðsráði mun svo ráða úrslitum um það hver verður kjörinn. Reglur um kjör á íþróttamanni ársins er að finna hér.
Kjöri á Íþróttamanni Dalvíkurbyggðar verður lýst við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Bergi þriðjudaginn 14. janúar 2020 kl. 17:00.
Tilnefningar
|
Íþróttagrein
|
Amanda Guðrún Bjarnadóttir
|
Golf
|
Andrea Björk Birkisdóttir
|
Skíði
|
Elín Björk Unnarsdóttir
|
Sund
|
Ingvi Örn Friðriksson
|
Kraftlyftingar
|
Svavar Örn Hreiðasson
|
Hestar
|
Sveinn Margeir Hauksson
|
Knattspyrna
|