Unnið hefur verið að málefnum "Gamla skóla" við Skíðabraut 12 á Dalvík nú um nokkurt skeið en eftir að Tónlistarskólinn á Tröllaskaga og SÍMEY fluttu sig yfir í nýtt húsnæði hefur "Gamli skóli" staðið auður. Bygginginn er um 70% í eigu Dalvíkurbyggðar og 30% í eigu ríkisins. Fyrir liggur áætlun um kostnaðarsamt viðhald.
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar er áhugasöm um að koma lífi aftur í bygginguna og vill því gefa íbúum tækifæri til að koma sínum skoðunum eða hugmyndum um nýtt framtíðarhlutverk "Gamla skóla" á framfæri með því að taka þátt í þessari könnun. Niðurstöður könnunarinnar verða nýttar sem umræðupunktar fyrir fyrirhugaðan íbúafund um málefni "Gamla skóla" þar sem áhugasömum gefst enn frekara tækifæri til að koma sínum skoðunum á framfæri.
Könnunin er opin til og með 5. október.
Allar fyrirspurnir og/eða ábendingar um könnunina skal senda á Margréti Víkingsdóttur, upplýsingafulltrúa, á netfanginu margretv@dalvikurbyggd.is.
Til að taka þátt í könnun er hægt að smella á hlekkinn hérna fyrir neðan:
Könnun um framtíðarhlutverk ,,Gamla skóla"