Jólagjöf til starfsmanna Dalvíkurbyggðar - gjafabréf
13. nóvember 2018
Dalvíkurbyggð auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í Dalvíkurbyggð sem hafa áhuga á að vera með í að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsmanna sveitarfélagsins.
Gjafabréfin virka sem greiðsla upp í kaup á vöru og þjónustu í Dalvíkurbyggð. Viðkomandi fyrirtæki fá síðan upphæðina greidda á skrifstofu Dalvíkurbyggðar gegn framvísun gjafabréfsins. Gert er ráð fyrir að gjafabréfin verði hægt að nota frá 3. desember 2018 til og með 15. janúar 2019.
Skilyrði fyrir þátttöku verslunar- og þjónustuaðila er að viðkomandi fyrirtæki sé skráð hjá hinu opinbera sem og starfandi í Dalvíkurbyggð. Skráningarfrestur er til 30. nóvember.
Skráning fer fram á netfanginu margretv@dalvikurbyggd.is og nánari upplýsingar gefur Margrét í síma 460 4900.