Íþróttaskólinn er 10 tíma námskeið sem hefst laugardaginn 15. september nk. Námskeiðið verður á laugardagsmorgnum í glæsilegu íþróttamiðstöðinni okkar frá kl. 11:00-12:00 og er ætlað börnum fæddum 2007-2010. Kennarar eru Harpa Rut Heimisdóttir íþróttafræðingur, M.S. og Valdís Guðbrandsdóttir iðjuþjálfi.
Mælt er með að börnin mæti í þægilegum fötum og berfætt svo þau nái sem bestu gripi á gólfinu og renni ekki til. Ætlast er til að foreldrar og/eða forráðamenn taki þátt í tímunum með börnunum og séu þeim til aðstoðar t.d. í áhaldahringjum, við klifur og fleira. Foreldrar og/eða forráðamenn bera alla ábyrgð á börnum sínum en námskeiðshaldarar reyna eftir fremsta megni að tryggja öryggi þeirra í æfingunum.
Markmið íþróttaskólans eru:
- að efla hreyfiþroska og hreyfigetu barnanna
- að auka úthald, sjálfstraust og vellíðan barnanna
- að losa um streitu og umfram orku
- að börnin læri á líkama sinn
- að efla samhæfingu
- að vernda heilsu barnanna
- að börnin læri ýmis stöðuhugtök, átti sig á rými, fjarlægðum og áttum
- að börnin læri að fara eftir reglum
- að hvetja börnin til áframhaldandi íþróttaiðkunar
Námskeiðsgjald fyrir 10 tíma er 7000 kr (veittur er 50% systkinaafsláttur). Tekið er við greiðslum í fyrsta tíma.
Skráningar skulu hafa borist fyrir fimmtudaginn 13. september á netföngin harpa@dalvikurbyggd.is eða valdis@dalvikurbyggd.is . Vinsamlegast skráið þá nafn barns, fæðingarár og símanúmer foreldri/forráðamanns.
Sjáumst hress og kát
Harpa Rut og Valdís