Í tilefni af Hreyfiviku UMFÍ 21.-27. september verður frítt í rækt og sund í Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar alla vikuna.
Einnig er frítt í hefðbundna líkamsræktartíma og neðangreinda dagskrá:
Mánudaginn 21. september:
Þrektími hjá Jónu Gunnu og Hönnu kl. 16:30
Opin fimleikaæfing fyrir alla mánudaginn 21. september frá 16-17 Tilvalið fyrir alla sem vilja prófa fimleika að kíkja til okkar frá 1.-99. ára
Þriðjudaginn 22. september:
Helena Ragna Frímanssdóttir leiðbeinir í sundi kl. 16-17
Jóna Gunna leiðbeinir í líkamsræktinni frá 16:30-17:30
Miðvikudaginn 23. september:
Þrektími hjá Jónu Gunnu og Hönnu kl. 16:30
Opin blakæfing miðvikudaginn 23. september kl. 20:00
Tilvalið fyrir þá sem vilja prófa blak. Ekkert aldurstakmark.
Ef áhugi verður og næg þátttaka næst verður hægt að hafa þrektímana kl. 16:30 hjá Jónu Gunnu og Hönnu áfram í vetur gegn vægu gjaldi
Dalvíkurbyggð og Ungmennasamband Eyjafjarðar standa saman að verkefninu