Fyrstu bekkingar fara á skíði í íþróttatímum

Fyrstu bekkingar fara á skíði í íþróttatímum

Undanfarnar vikur hafa fyrstu bekkingar grunnskólanna í Dalvíkurbyggð nýtt íþróttatíma sína á skíðasvæðinu í Böggvisstaðafjalli með leikfimiskennurum og leiðbeinendum frá Skíðafélagi Dalvíkur. Verkefnið er samstarfsverkefni skíðafélagsins og skólanna í sveitarfélaginu.

Börnin hafa alls mætt í sex skipti og náð ótrúlegum árangri. Nánast allir eru orðnir lyftufærir og sjálfbjarga á barnasvæðinu.

Það eru hrein forréttindi að geta boðið börnum sveitarfélagsins upp á slíka þjónustu en með samstilltu átaki foreldra, skólanna, skíðasvæðisins og skíðafélagsins hefur þetta gengið eins og í sögu og er vonandi komið til að vera um ókomna tíð. Með slíku átaki læra öll börn sveitarfélagsins á skíði sér til yndis, ánægu og útiveru.


Skíðafélagið þakkar öllum sem að verkefninu komu.
Sjáumst vonandi sem oftast í fjallinu.