Á 307. fundi sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar þann 20. nóvember 2018 var síðari umræða um tillögu að starfs- og fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2019 og þriggja ára áætlun 2020-2022.
Helstu niðurstöður eru áætlaðar eftirfarandi:
Rekstrarniðurstaða Samantekið A- og B- hluti er jákvæð um 119 m.kr. árið 2019.
Rekstrarniðurstaða Aðalsjóðs er áætluð neikvæð um tæpar 13 m.kr. fyrir sama ár en aftur á móti er rekstrarniðurstaða A-hluta (Aðalsjóður og Eignasjóður) jákvæð um 66 m.kr.
Tekjur Samantekið A- og B- hluta eru um 2,4 milljarðar, þar af eru tekjur Aðalsjóðs um 2,1 milljarðar og um 1,8 milljarðar af því eru skatttekjur í formi útsvars og fasteignaskatts.
Stærstu málaflokkar Aðalsjóðs eru fræðslu- og uppeldismál um 921 m.kr. eða 51,61% af áætluðum skatttekjum, æskulýðs- og íþróttamál um 303 m.kr. eða 16,97% af skatttekjum Aðalsjóðs og sama hlutfall félagsþjónustu er 9,39% eða um 167 m.kr. Aðrir málaflokkar eru því 22,03% af skatttekjunum.
Laun og launatengd gjöld fyrir Samantekið A- og B-hluta eru um 1,3 milljarðar fyrir árið 2019 með áætlaðri uppfærslu lífeyrisskuldbindinga.
Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum Samantekið A- og B-hluta fyrir árið 2019 eru áætlaðar um 328 m.kr. Stærstu liðirnir er framlag vegna gervigrasvallar að upphæð 160 m.kr., gatnagerð og lýsing 49 m.kr. og hafnaframkvæmdir 58,5 m.kr. Á árunum 2019-2021 er gert ráð fyrir hönnun og framkvæmdum við skólalóð Dalvíkurskóla alls um 43,5 m.kr.
Áætluð lántaka árið 2019 er 135 m.kr. og afborganir af lánum eru 124 m.kr. Langtímaskuldir í árslok 2019 eru um 843 m.kr. Veltufé frá rekstri samantekið fyrir A- og B-hluta árið 2019 er 359 m.kr.
Framlagðarhlutafall Samantekið fyrir A- og B- hluta fyrir árið 2019 er 13,8% (viðmiðið er 15% og hærra) , reiknað skuldaviðmið samkvæmt sveitarstjórnarlögum er 75,5% (leyfilegt hámark er 150%) og veltufjárhlutfallið er 1,10.
Á fundi sveitarstjórnar komu fram þakkir sveitarstjórnar til starfsmanna og stjórnenda fyrir vinnuna við gerð fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
Nánari upplýsingar um fjárhagsáætlunina veitir Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri, í síma 4604902 eða í gegnum netfangið katrin@dalvikurbyggd.is