Hvað er liðveisla?
Liðveisla er persónulegur stuðningur við einstakling sem miðar að því að rjúfa félagslega einangrun og stuðla að því að hver og einn getið notið félags- og menningarlífs á eigin forsendum.
- Starf liðveitanda felst í að aðstoða einstaklinga í ýmsum daglegum athöfnum, persónulegri ráðgjöf og aðstoð sem miðar einkum að því að rjúfa félagslega einangrun.
- Liðveisla felst því í að fara með viðkomandi í bíó, leikhús, kaffihús, bókasafn, eiga notalegt spjall, bíltúr sem notandi greiðir fyrir sjálfur, gönguferð og fleira.
- Samkvæmt reglum Félagsmálaráðs Dalvíkurbyggðar á hver einstaklingur rétt á tólf klukkustundum í liðveislu á mánuði nema að félagsmálaráð hafi samþykkt annað.
Hæfniskröfur:
- Hlýlegt viðmót, jákvæðni og umhyggja
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði í starfi og geta til að vinna sjálfstætt
- Að sýna ábyrgð og vera ábyrgðarfullur
- Að vera hugmyndaríkur og sveigjanlegur
Umsóknarfrestur er til miðvikudagsins 5. apríl 2017
Frekari upplýsingar veitir Þórhalla Franklín Karlsdóttir, þroskaþjálfi í síma 460-4900 eða á netfanginu tota@dalvikurbyggd.is . Umsókn og ferilskrá skal senda inn á Mín Dalvíkurbyggd (inná heimasíðu www.dalvikurbyggd.is ) eða skila í þjónustuver bæjarskrifstofunnar. Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum. Vakin er athygli á að þörf er á fleiri körlum til starfa á verksviðinu.