Er lögheimili þitt rétt skráð?

Með tilvísun til laga nr. 73/1952 um aðseturskipti er hér með vakin athygli á þeirri skyldu íbúa að tilkynna um aðseturskipti í síðasta lagi 30. nóvember 2008. Eyðublöð fást hér á bæjarskrifstofunni og einnig á vef Hagstofunnar www.hagstofa.is. Athugið að þetta á við bæði um flutning milli sveitarfélaga og innanbæjar. Atvinnurekendur eru hvattir til að brýna fyrir fóki sem þeir ráða til starfa að tilkynna aðseturskipti ef búseta þeirra er í Dalvíkurbyggð. Húsráðendur eru einnig minntir á tilkynningaskyldu sína vegna þeirra sem í húsum þeirra dvelja. Upplýsingar og aðstoð fást á bæjarskrifstofu Dalvíkurbyggðar, Ráðhúsi Dalvíkur, og þangað ber að skila tilkynningum um aðseturskipti. Einnig er hægt að skoða þessa auglýsingu hér en í henni koma fram nánari upplýsingar á íslensku, ensku og pólsku.