Æskilegar kennslugreinar eru náttúrufræði á unglingastigi og umsjónarkennsla.
Hæfniskröfur:
- Grunnskólakennarapróf
- Tilbúinn að vinna eftir fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum
- Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur
- Hefur frumkvæði og metnað í starfi og getu til að vinna í teymi
- Hæfni í mannlegum samskiptum og nær vel til barna
- Tilbúinn að takast á við fjölbreyttar áherslur í skólastarfi
Dalvíkurskóli er 230 nemenda skóli. Einkunnarorð skólans eru þekking, færni, virðing og vellíðan. Skólastarfið byggist á teymiskennslu starfsmanna. Í Dalvíkurskóla er lögð áhersla á að starfsfólki líði vel í starfi og þar er jákvæðni höfð að leiðarljósi. Allir skólar í Dalvíkurbyggð starfa undir Uppbygginastefnunni og flagga Grænfánanum.
Umsóknarfrestur er til 3. apríl 2018.
Upplýsingar gefur Gísli Bjarnason skólastjóri Dalvíkurskóla gisli@dalvikurbyggd.is, símar 460 4980 og 863 1329. Umsókn á samt ferilskrá skal sent á netfangið gisli@dalvikurbyggd.is