Dalvíkurskóla vantar sérkennara. Umsóknarfrestur er til 12. júní 2013
Hæfniskröfur:
- Grunnskólakennarapróf, viðbótarmenntun í sérkennslufræðum skilyrði
- Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur
- Hefur frumkvæði og metnað í starfi og getu til að vinna í hóp
- Hæfni í mannlegum samskiptum og nær vel til barna
- Tilbúinn að takast á við fjölbreyttar áherslur í skólastarfi
- Tilbúinn að vinna eftir fjölbreyttum kennsluaðferðum
Dalvíkurskóli er 260 nemenda grunnskóli. Einkunnarorð skólans eru þekking, færni, virðing og vellíðan. Skólinn leggur áherslu á snemmtæka íhlutun í námi nemenda. Í skólanum er m.a. unnið eftir kennsluaðferðunum Byrjendalæsi, Orð af orði og Töfraheimi stærðfræðinnar (stærðfræðiverkefni tengd reynsluheimi nemenda með áherslu á verklega vinnu). Dalvíkurskóli flaggar Grænfánanum. Í Dalvíkurskóla er lögð áhersla á að starfsfólki líði vel í starfi og þar er jákvæðni höfð að leiðarljósi. Allir skólar í Dalvíkurbyggð eru að innleiða Uppbyggingarstefnuna.
Upplýsingar gefur Gísli Bjarnason skólastjóri Dalvíkurskóla gisli@dalvikurbyggd.is símar 4604980 og 8631329. Katrín Fjóla Guðmundsdóttir deildarstjóri kata@dalvikurbyggd.is símar 4604980 og 8479810. Friðrik Arnarsson deildarstjóri fridrik@dalvikurbyggd .is 4604980 og 8490980.