Breyting á léni Dalvíkurbyggðar

Nú hefur sú breyting orðið á að í stað þess að nota lénið dalvik.is hefur sveitarfélagið nú tekið upp lénið dalvikurbyggd.is. Eldra lénið mun þó verða virkt áfram. Þessi breyting hefur í för með sér breytingar á netföngum starfsmanna sveitarfélagsins sem munu héðan í frá vera með netföngin @dalvikurbyggd.is. Áætlað er að þetta muni líka eiga við um þá starfsmenn sem hafa verið með önnur netföng svo sem starfsmenn grunn- og leikskóla, en breytingin hefur ekki enn átt sér stað þar. Markmiðið er að allir starfsmenn sveitarfélagsins hafa sömu endingu á netfangi sínu.