Skíðasamband Íslands valdi 20. desember síðastliðinn skíðamann og skíðakonu ársins 2008 og varð Björgvin Björgvinsson frá Dalvík fyrir valinu sem skíðamaður ársins.
Björgvin hefur verið fremsti skíðamaður Íslands um árabil. Á árinu 2008 hefur Björgvin staðið sig mjög vel í hörðum heimi skíðaíþróttarinnar. Hann vann Eyja-álfubikarinn samanlagt, varð í öðru sæti í stórsvigi og risasvigi vann tvíkeppnina, keppnin fór fram í Ástralíu og Nýja Sjálandi. Björgvin náði góðum árangi í nóvember í tveimur fyrstu mótunum í Evrópubikar þar var hann í 8. og 10. sæti í svigi. Björgvin varð þrefaldur Íslandsmeistari á Íslandsmeistaramóti í svigi , stórsvigi og alpatvíkeppni.
Við óskum Björgvin til hamingju með þennan glæsilega titil.
Skíðakona ársins var valin Dagný Lind Kristjánsdóttir frá Akureyri. Dagný hefur verið fremsta skíðakona Íslands um árabil. Á árinu 2008 keppti Dagný Linda á 14 Heimsbikarmótum í bruni, risasvigi og tvíkeppni, hún var númer 123 á heimslista í bruni, 203 í risasvigi og 140 í tvíkeppni (svig+brun) sem voru hennar þrjár sterkustu greinar.
Dagný Linda varð þrefaldur Íslandsmeistari á Íslandsmeistaramóti í svigi, stórsvigi og alpatvíkeppni. Dagný var valin Íþróttamaður Akureyrar 2007.
Dagný Linda hefur nú lagt skíðin á hilluna og hætt æfingum og keppni.
Frétt fengin af www.ski.is