Í janúar lok auglýsti Dalvíkurbyggð laust til umsóknar starf skólastjóra Dalvíkurbyggðar. Umsóknarfrestur rann út 27. febrúar og sóttu átta um starfið. Eftirtaldir sóttu um starfið:
Eyjólfur Andrés Björnsson, flugumferðarstjóri, Reykjavík
Gísli Bjarnason, aðstoðarskólastjóri, Dalvíkurbyggð
Hildur Bettý Kristjánsdóttir, kennari, Akureyri
Kristján Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri, Dalvíkurbyggð
Kristján Arnar Ingason, kennari, Reykjavík
Rannveig Edda Hjaltadóttir, kennari, Danmörk
Selma Þórunn Káradóttir, kennari, Reykjavík
Örlygur Þór Helgason, kennari, Akureyri