Hið árlega aðventurölt á Dalvík verður fimmtudagskvöldið 1. desember milli kl. 19:00-22:00. Kruðerí, kósíheit, kertaljós og knús.
Eigum saman skemmtilegt kvöld á aðventunni, njótum stundarinnar, röltum um, hittum fólk, kaupum jólagjafirnar, njótum veitinga og óvæntra uppákoma.
Tilboð - smakk - markaður - Gleði og aðventustemming eins og hún gerist best.
Eftirtaldir hlakka til að fá þig í heimsókn:
- Loppumarkaðurinn Hólavegi 15
- Ílit snyrtistofa
- Menningarhúsið Berg markaður
- Samkaup Úrval
- Gísli Eiríkur og helgi - Kaffihús Bakkabræðra
- Hjá Sögu-Hárgreiðslustofa
- Húsasmiðjan
- Draumablá
- Basalt Café+Bistro