2. göngudagur - Sunnudagur 27 júní:
Gengið að Steinboga og inn að Gljúfrárjökli, brottför kl. 10:00
Lagt er upp frá Kóngstöðum. Bergsúla, einstök náttúrusmíð. Sögur af hálftröllum og heiðnum mönnum. Svölun við jökulsporð. Erfiðleikastig: 3 skór
Nánari lýsing hér
Eyðibýlaganga, brottför kl. 13:00
Haldið frá Kóngsstöðum að eyðibýlunum hljóðu í botni Skíðadals, mannlíf liðinna alda rifjað upp. Hugað að náttúrufari, örnefnum og huldum vættum. Erfiðleikastig: 1 skór
Nánari lýsing hér
Kvöldvaka í Stekkjarhúsi kl. 18:00 að hætti gangnamanna, boðið verður uppá kraftmikla gúllassúpu og eldhitað brauð.
3. göngudagur - Mánudagur 28. júní:
Reykjaheiði, brottför kl. 10:00
Ekið frá Sundlaug Dalvíkur að Reykjum í Ólafsfirði. Gengin er gamla póstleiðin milli Svarfaðardals og Ólafsfjarðar. Fallega vörðuð leið. Hér lét Davíð sig dreyma um dalakofann. Erfiðleikastig: 2 skór. Nánari lýsing hér
Melrakkadalur,Álfaganga, brottför kl. 16:00
Lagt upp frá bílastæðinu við Dalvíkurkirkju. Brimnesá í fögru gljúfri. Framhlaupið Upsi og Melrakkadalur. Hulduheimar og huldusögur sem tengjast staðnum.
Hóparnir tveir sameinast við Sundlaug Dalvíkur og fara saman í sund. Erfiðleikastig: 1 skór. Nánari lýsing hér