Kl. 08:00 Fánar dregnir að húni - allir fánar á loft!
Kl. 11:00 17. júní hlaupið fer fram á íþróttavellinum á Dalvík í umsjón frjálsíþróttadeildar UMFS. Skráning á staðnum fyrir hlaup og verðlaunaafhending að hlaupi loknu.
Kl. 13:00 Skrúðganga leggur af stað frá Íþróttamiðstöð að Menningarhúsinu. Þátttakendur eru beðnir um að mæta tímanlega og taka með sér fána og veifur.
Kl. 13:30 Hátíðarstund í Menningarhúsinu Bergi
- Ávarp fjallkonunnar
- Hátíðarræða
- Leikhópurinn Lotta
- Tónlistaratriði
- Það spáir karamellurigningu í kringum Berg
Að lokinni hátíðarstund við Berg:
- Hestamennska - Sveinbjörn Hjörleifsson og aðstoðarmenn hans teyma hesta undir börnum við Krílakot.
- Leiktæki í umsjón flokksstjóra Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar í kirkjubrekku -
- Sápubolti, vatnsrennibraut, og fleira skemmtilegt.
- Í tilefni af 20 ára afmæli Dalvíkurbyggðar verða að auki 3 hoppukastalar fyrir börnin.
Foreldrar athugið: það verður hægt að bleyta sig í sumum leiktækjum og því æskilegt að börnin hafi föt til skiptanna.
Myndlistasýning í Bergi opin frá 12 - 17.
Sigríður Huld Ingvarsdóttir sýnir olíu og kolamyndir.
Allir velkomnir.
Hátíðarkaffi
Barna– og unglinaráð knattspyrnudeildar UMFS selur hátíðarkaffi í safnaðarheimili Dalvíkurkirkju að lokinni hátíðarstund. Verð 13 ára og eldri 1.500 kr, börn 6-12 ára 500 kr. Frítt fyrir börn 0-6 ára miðast við leikskólaaldur. Kaffið stendur til kl 17:00.
Kl. 18:30 - 21:00 Sundlaugarfjör í íþróttamiðstöðinni/sundlaug. , Dúndrandi tónlist og fatasund fyrir þá sem vilja! Fríar pylsur og svali í boði við íþróttamiðstöðina í umsjón Ungmennaráðs Dalvíkurbyggðar. Allir velkomnir - frítt inn.
GLEÐILEGA ÞJÓÐHÁTÍÐ