Leikskólinn Krílakot auglýsir eftir deildastjóra

Leikskólinn Krílakot auglýsir eftir deildastjóra

Leikskólinn Krílakot auglýsir eftir deildastjóra í 95% starf frá og með 13. ágúst 2024 í eitt ár

Leikskólinn Krílakot er 5 deilda leikskóli á Dalvík. Leikskólinn Krílakot er heilsueflandi leikskóli sem vinnu eftir aðferðum Uppeldi til ábyrgðar. Önnur verkefni eru Lubbi finnur málbein, Orðaleikur, Grænfáni, útikennsla stærðfræði.

Gildi Krílakots eru Gleði – Sköpun – Þor og má finna nánari kynningu á starfi Krílakots hér.

Helstu verkefni:

  • Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra.
  • Er hluti af stjórnunarteymi leikskólans.
  • Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni.
  • Sér um foreldrasamstarf á deildinni.
  • Vinur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
  • Starfsreynsla á leikskólastigi æskileg.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í starfi.
  • Góð færni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Áhugi um fræðslu barna og velferð þeirra.
  • Stundvísi.
  • Góð íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Hreint sakavottorð.

Fríðindi í starfi

  • Frír hádegismatur
  • Heilsustyrkur
  • Betri vinnutími
  • Lokað haust og vetrarfrí og einn dagur milli jóla og nýárs og er hluti af betri vinnutíma

Starfið hentar öllum kynjum. Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara. Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi og er þá greitt samkvæmt viðkomandi kjarasamningi.

Ef umsækjendur uppfylla ekki menntunar- og hæfniskröfur áskilur leikskólastjóri sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Umsóknafrestur er til 10. júní 2024

Sótt er um starfið í gegnum þjónustugátt Dalvíkurbyggðar Með umsókn skal fylgja afrit af leyfisbréfi, ferilskrá og kynningarbréfi, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið, stutt persónuleg kynning ásamt nöfnum umsagnaraðila.

Frekari upplýsingar veitir: Ágústa Kristín Bjarnadóttir aðstoðarleikskólastjóri Krílakots í síma 460-4950 eða á netfangið agusta@dalvikurbyggd.is

Dalvíkurbyggð er tæplega 1900 manna sveitafélag við Eyjafjörð. Þar er blómlegt atvinnulíf, öflugt menningarlíf og aðstaða til íþróttaiðkunar framúrskarandi. Umhverfið er sérlega fjölskylduvænt og aðstæður til útivistar með besta móti.