Sóttvarnalæknir beinir því til rekstraraðila hjúkrunarheimila að koma eftirfarandi skilaboðum
um smitvarnir vegna kórónaveiru (COVID-19) á framfæri til þeirra sem málið varðar:
Íbúar hjúkrunarheimila eru flestir aldraðir og / eða með ýmsa undirliggjandi sjúkdóma.
Þeir eru því í sérstökum áhættuhóp tengt því að veikjast alvarlega af Kórónaveirunni.
Við viljum því biðja þá sem eru með kvefeinkenni, flensulík einkenni eða hafa ferðast nýlega
til skilgreindra áhættusvæða samkvæmt upplýsingum á vef Landlæknis að gæta varúðar
og koma ekki í heimsóknir á hjúkrunarheimilið.
Mikilvægt er að þeir sem eru frískir, hafa ekki verið á skilgreindum áhættusvæðum
og hafa því ekki ástæðu til að ætla að þeir hafi smitasta af veirunni hafi eftirfarandi í huga:
- Handþvottur er mikilvægasta ráðið til að forðast smit og einnig er mikilvægt að nota handspritt.
Hafið þetta alltaf í huga þegar komið er inn á heimilin.
- Forðist alla líkamlega snertingu eins og hægt er svo sem handabönd, faðmlög og kossa við íbúa.
- Forðist að koma við snertifleti í almennum rýmum svo sem handriði og hurðarhúna.
Við bendum ykkur á að kynna ykkur leiðbeiningar á vef Landlæknisembættisins
því staða mála og leiðbeiningar þeim tengdar geta breyst dag frá degi.