09. október 2003
Dagana 10. - 12. október verður haldið Suzukifiðlunámskeið í Tónlistarskóla Dalvíkur. Skráðir eru nærri 80 þátttakendur af öllu landinu á aldrinum 4 - 18 ára. Alls munu verða hér um 200 manns foreldrar og börn. Námskeiðið hefst kl. 17 á föstudaginn og lýkur á sunnudaginn. Þátttakendum verður skipt niður í 5 hópa sem æfa í tónlistarskólanum og síðan er hljómsveit sem æfir í sal Dalvíkurskóla. Námskeiðinu lýkur svo með tónleikum í Dalvíkurkirkju kl. 13.30. Kennarar verða Tove og Béla Detrekov og Claus en þau eru öll meðal virtustu Suzukikennara í Evrópu. Auk þeirra verða hér nokkrir íslenskir kennarar við kennslu þar á meðal Anna Podhajska sem er hvatamaður að því að koma þessu námskeiði á laggirnar en hún hefur séð um svipuð námskeið í Póllandi á sumrin. Þetta er samvinnuverkefni milli Tónlistarskóla Dalvíkur og Tónlistarskólans á Akureyri og munu erlendu kennararnir halda námskeið á Akureyri fyrir Suzukikennara af öllu landinu eftir helgina. Foreldrafélag Suzukinemenda hér og á Akureyri hefur tekið virkan þátt í undirbúningnum.