Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við Lögreglustjórann á Norðurlandi eystra lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinu úti fyrir Norðurlandi. Fjöldi misgengja er á þessu svæði og ómögulegt er að segja hvaða áhrif stórir jarðskjálftar hafa á þau misgengi. Svæðið er hluti af Tjörnesbrotabeltinu; misgengissvæði milli rekbeltanna sem liggja um Ísland og norður eftir Kolbeinseyjarhrygg, og algengt er að þarna komi hrinur skjálfta.
Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila.
Viðbúið er að grjóthrun geti orðið við þessar aðstæður og fólk er beðið um að hafa vara á undir bröttum hlíðum.
Hér má síðan finna tengil inn á varnir og viðbúnað vegna jarðskjálfta.
Eftirfarandi upplýsingar eru af vefsíðu almannavarna varðandi hegðun í jarðskjálfta.
Ef þú ert innandyra þegar þegar jarðskjálfti byrjar– ekki hlaupa af stað.
• Haltu kyrru fyrir, mörg slys verða þegar hlaupið er af stað
• Farðu undir borð eða rúm og haltu þér í borð- eða rúmfót
• Krjúptu niður í horni við burðarvegg eða í hurðaropi við burðarvegg
• Verðu höfuð þitt og andlit með kodda- ef þú vaknar upp við jarðskjálfta
• Haltu þig frá gluggum – þeir geta brotnað
• Láttu vita af þér með SMS þegar jarðskjálftnn hættir
Ef þú er utandyra þegar þú finnur jarðskjálfta – ekki hlaupa inn
• Vertu áfram úti
• Ekki vera nálægt háum byggingum sem geta hrunið eða háum trjám
• Grjóthrun, skriður og snjóflóð geta fallið úr hlíðum og fjalllendi
• Raflínur geta verið hættulegar – varist að snerta þær
• Reyndu að komast á opið svæði þar sem byggingar þrengja ekki að
Ef þú ert að keyra bíl þegar þú finnur jarðskjálfta: • Legðu bílnum og stoppaðu. Vegir og brýr geta skemmst í jarðskjálfta
• Hafðu sætisbeltin spennt
• Haltu kyrru fyrir í bílnum þar sem hann getur varið þig gegn brotum og braki sem fer af stað í jarðskjálfta – hlustaðu á útvarpið, þar koma jafnan fyrstu upplýsingarnar um jarðskjálftann.