Leikhópurinn Lotta sýnir leikverkið bakkabræður á Dalvík sunnudaginn 26. júlí kl 17:00
Sýningarstaður verður í Kirkjubrekkunni (íþróttahúsið til vara ef veður verður slæmt).
Enginn aðgangseyrir er á sýninguna þar sem sýningin er í boði Menningarráðs Dalvíkurbyggðar og 17. júní hátiðarnefndar.
Leikhópurinn Lotta er landsmönnum að góðu kunnur, en hópurinn hefur frá árinu 2007 ferðast með sýningar sínar um landið þvert og endilangt. Lotta hefur sérhæft sig í utandyra sýningum á sumrin og ferðast nú 14. sumarið í röð með glænýjan fjölskyldusöngleik.
Í sumar setur Leikhópurinn Lotta upp frábæra sýningu byggða á þjóðsögunum um Bakkabræður. Í meðförum Lottu má segja að Bakkabræður fái tækifæri til að segja okkur sögu sína á sínum forsendum og leiðrétta þær rangfærslur sem hafa ratað í þjóðsögurnar. Bakkabræður eru 13. frumsamdi söngleikurinn sem Leikhópurinn Lotta setur upp, að venju er fjörið í fyrirrúmi, mikið af gríni, glensi og skemmtilegum lögum þó undirtónninn sé alvarlegur og boðskapurinn fallegur.
Bakkabræður er sýning sem er hugsuð fyrir alla aldurshópa og eiga þar fullorðnir jafnt sem börn að geta skemmt sér saman. Þar sem sýningarnar eru utandyra er um að gera að klæða sig eftir veðri, pakka smá nesti og hella vatni í brúsa og halda svo á vit ævintýranna í Ævintýraskóginum.
Leikstjórn: Þórunn Lárusdóttir
Leikarar: Andrea Ösp Karlsdóttir, Huld Óskarsdóttir, Júlí Heiðar Halldórsson, Sigsteinn Sigurbergsson, Stefán Benedikt Vilhelmsson og Viktoría Sigurðardóttir.
Leikskáld: Anna Bergljót Thorarensen
Höfundar tónlistar: Baldur Ragnarsson, Rósa Ásgeirsdóttir, Þórður Gunnar Þorvaldsson.
Höfundar lagatexta: Anna Bergljót Thorarensen og Baldur Ragnarsson
Hljóðhönnun og útsetningar: Þórður Gunnar Þorvaldsson
Búningahönnun: Kristína R. Berman
Danshöfundur: Viktoría Sigurðardóttir
Leikmyndahönnun: Andrea Ösp Karlsdóttir og Sigsteinn Sigurbergsson
Leikmunir: hópurinn
Hlökkum til að sjá sem flesta!