Leikskólinn Krílakot auglýsir eftir leikskólakennurum/leiðbeinendum til starfa. Um tímabundin störf er að ræða. Viðkomandi þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
Starfssvið og helstu verkefni:
Vinna að uppeldi og menntun barnanna.
Fylgjast vel með velferð þeirra og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
Starfa samkvæmt námskrá skólans og sinna þeim verkefnum sem deildarstjóri eða skólastjóri fela honum.
Taka þátt í öllu starfi á deildinni og í skólanum.
Hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
- Starfsreynsla á leikskólastigi æskileg.
- Jákvæðni og sveigjanleiki.
- Góð færni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Áhugi um fræðslu barna og velferð þeirra.
- Stundvísi
- Góð íslenskukunnáttu æskileg.
Sótt er um í gegnum íbúagátt Dalvíkurbyggðar, min.dalvikurbyggd.is, með umsókn skal fylgja ferilskrá og nöfn umsagnaraðila og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið og stutt persónuleg kynning á umsækjanda.
Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að framvísa sakavottorði ef til ráðningar kemur.
Greitt er samkvæmt kjarasamningi Félags leikskólakennara. Ef ekki fást leikskólakennarar til starfa er greitt samkvæmt kjarasamningi Kjalar.
Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur og er til og með 9. janúar 2022.
Ef umsækjendur uppfylla ekki kröfurnar hér að ofan áskilur leikskólastjóri sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Nánari upplýsingar , m.a. um stöðuhlutföll og ráðningartíma, veitir: Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir leikskólastjóri Krílakots í síma 460-4950 eða á netfangið gudrunhj@dalvikurbyggd.is
Á Krílakoti eru börn á aldrinum 10 mánaða - 6 ára. Deildirnar eru fimm og heita Skýjaborg, Sólkot, Mánakot, Kátakot og Hólakot. Leikskólinn Krílakot er heilsueflandi leikskóli sem vinnur eftir aðferðum Uppeldi til ábyrgðar sem ýtir undir ábyrgðarkennd og sjálfstjórn nemenda ásamt því að þau átti sig á sínum þörfum. Önnur verkefni eru Lubbi finnur málbein sem er námstæki til að læra íslensk málhljóð, Orðaleikur, en þar er unnið með námsefni fyrir börn af erlendum uppruna sem eru að læra íslensku sem annað mál, Útikennsla, Grænfáni og stærðfræði. Á Krílakoti hafa einnig verið unnin fjölmörg þróunarverkefni og má þar nefna verkefni tengd lestri, stærðfræði og fjölmenningu.
Hægt er að kynna sér meira um leikskólann á heimasíðu Krílakots https://www.dalvikurbyggd.is/krilakot