Eigna- og framkvæmdadeild Dalvíkurbyggðar auglýsir laust starf yfirflokksstjóra vinnuskóla. Dalvíkurbyggð er fjölmenningarlegt samfélag og þarf viðkomandi að vera góð fyrirmynd, sterkur leiðtogi og hafa áhuga á að vinna með ungmennum.
Starfstími er frá 1.maí – 31. ágúst 2020
Helstu verkefni:
- Skipuleggur verkefni í samstarfi við deildarstjóra.
- Stjórnar og samræmir vinnu flokksstjóra vinnuskóla.
- Skilar greinargerð um vinnuskólann að loknu sumri.
- Auk annarra starfa sem til falla í kringum vinnuskóla og opin svæði.
- Ráðning starfsmanna og unglinga í samvinnu við deildarstjóra eigna- og framkvæmdadeildar.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólanám sem nýtist í starfi er kostur, sérstaklega ef um uppeldismenntun er að ræða
- Tuttugu ára eða eldri.
- Reynsla af störfum með ungmennum er kostur
- Góð samskiptahæfni, skipulagsfærni og eiga gott með að hafa yfirsýn
- Hæfni til að stuðla að jafnræði og réttlæti í samfélaginu
- Einlægur áhugi á umhverfismálum
- Bílpróf
- Hreint sakavottorð
ATH! Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur og er því til og með 13. apríl nk.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á Mín Dalvíkurbyggð, http://min.dalvikurbyggd.is/ (atvinnuumsókn, merkist: „yfirflokksstjóri Vinnuskóla“)
Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið og sýn á góðan vinnuskóla.
Nánari upplýsingar veitir Steinþór Björnsson (steinthor@dalvikurbyggd.is), deildarstjóri eigna- og framkvæmdadeildar.
------------------------------------------------------------------------------------
Einnig auglýsir Eigna- og framkvæmdadeild Dalvíkurbyggðar laus störf flokksstjóra vinnuskóla. Dalvíkurbyggð er fjölmenningarlegt samfélag og þarf viðkomandi að vera góð fyrirmynd, sterkur leiðtogi og hafa áhuga á að vinna með ungmennum. Gildi Dalvíkurbyggðar eru virðing, jákvæðni og metnaður. Greitt er samkvæmt kjarasamningi stéttarfélagsins Kjalar og Sambands ísl. sveitarfélaga.
Starfstími er 10 vikur, frá 1. júní – 15. ágúst 2020
Helstu verkefni:
- Annast verkstjórn, kennslu og uppeldi
- Leitast við að stuðla að góðri ástundun, góðri umgengni og reglusemi
- Heldur skýrslu um mætingar og ástundun unglinganna og skráir daglega vinnutíma
- Annast ýmis skapandi verkefni á vegum vinnuskóla.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Kostur að viðkomandi hafi uppeldismenntun
- Tuttugu ára eða eldri.
- Reynsla af störfum með ungmennum er kostur
- Góð samskiptahæfni, skipulagsfærni og eiga gott með að hafa yfirsýn
- Hæfni til að stuðla að jafnræði og réttlæti í samfélaginu
- Einlægur áhugi á umhverfismálum
- Bílpróf
- Hreint sakavottorð
ATH! Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur og er því til og með 13. apríl nk.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á Mín Dalvíkurbyggð, http://min.dalvikurbyggd.is/ (atvinnuumsókn, merkist: „flokksstjóri Vinnuskóla“)