Að venju verður margt við að vera á 17. júní í Dalvíkurbyggð. Opið hús verður hjá ferðaþjónustuaðilum, sundlaugarveisla í sundlauginni, rímur kveðnar í Byggðasafninu og auk þess hefðbundin dagskrá við Dalvíkurkirkju. En dagskráin er annars þessi:
Kl. 08:00 Fánar dregnir að húni
Kl. 11:00 17. júní hlaupið
Árlegt 17. júní hlaup fer fram á íþróttavellinum á Dalvík í umsjá frjálsíþróttadeildar UMFS. Skráning fer fram á staðnum fyrir hlaup.
Kl. 11:00 Andlitsmálning fyrir yngstu kynslóðina á neðri hæð Sundlaugar Dalvíkur til kl. 12:30.
Kl. 13:30 Skrúðganga
Skátar fara fyrir skrúðgöngu frá Sundlaug Dalvíkur að Dalvíkurkirkju. Gangan leggur af stað kl.13:30, þátttakendur eru beðnir um að mæta tímanlega.
Kl. 14:00 Hátíðarstund ofan Dalvíkurkirkju
Ávarp fjallkonu
Kvennakvartettinn Dalalæðurnar syngja
Harmónikkuleikur
Sigurvegarar úr Söngkeppni félagsmiðstöðvarinnar taka lagið
Hátíðarkaffi - frjálsíþrótta- og körfuknattleiksdeildir UMFS selja
hátíðarkaffi í safnaðarheimili Dalvíkurkirkju að lokinni hátíðarstund.
Hestarmennska - Sveinbjörn Hjörleifsson og starfsmenn hans teyma hesta undir börnum að lokinni hátíðarstund, frá brún kirkjubrekku.
Kl. 15:00 Brúðuleiksýning í Dalvíkurkirkju, Bernd Ogrodnik brúðuleikari sýnir leikþætti sem henta öllum aldurshópum, pabbi, mamma, afi, amma og allir með!
Kl. 16:00- kl. 18 Slökkvilið Dalvíkur sýnir bíla og búnað við kirkju og býður síðan börnum í ökuferð um bæinn milli kl.16:00 og 18:00.
Ferðaþjónustuaðilar í sveitarfélaginu bjóða heim og kynna aðstöðu sína líkt og í fyrra en það gafst afar vel og var vel heppnað. Heitt á könnunni.
Byggðasafnið Hvoll verður opið frá kl. 11:00 - 18:00. Þórarinn Hjartarson frá Tjörn kveður rímur kl. 15:00.
Kl. 17:00 Barnabíó í Víkurröst - teiknimyndasýning á breiðtjaldi fyrir börn - gott væri ef pabbi og mamma eða eldri systkyni gætu komið með yngstu börnunum.
Kl. 17:00 Streetball - körfuboltasprell í umsjón körfuknattleiksdeildar UMFS við Dalvíkurskóla
Kl. 19:30- kl. 22:00
Sundlaugarpartí, fatasund, tónleikar og húllumhæ í Sundlaug Dalvíkur.
Ari í Árgerði hefur leikinn og kveikir í okkur með nokkrum hressum kúrekalögum!!
Síðan stíga á stokk hljómsveitirnar Mikki refur og sætabrauðsdrengirnir og Haltur leiðir blindan en þær eru skipaðar ungum tónlistarmönnum úr Dalvíkurbyggð. Hvanndalsbræður mæta á svæðið í lopapeysunum með þjóðlega stemmningu í farteskinu eins og þeim einum er lagið.
Frítt í sund.....allir velkomnir hvort sem þeir fara í sund eða ekki. Í fatasundi má vera í stuttermabol og/eða íþróttabuxum.....ekki ný föt eða föt sem láta lit.
GÓÐA SKEMMTUN Á 17. JÚNÍ