Málsnúmer 201705080Vakta málsnúmer
Á 811. fundi byggðaráðs þann 16. febrúar 2017 var eftirfarandi bókað:
"Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Kristinn Ingi Valsson, formaður íþrótta- og æskulýðsráðs, Jón Ingi Sveinsson, varaformaður íþrótta- og æskulýðsráðs, og Hlynur Sigursveinsson, sviðstjóri fræðslu- og menningarsviðs, kl. 8:15.
Á 86. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 7. febrúar 2017 var eftirfarandi bókað:
"Umræður um útboð á rekstri tjaldsvæðis.
Umræður um undirbúning á útboði á rekstri tjaldsvæðis og var niðurstaðan að formaður og varaformaður óski eftir að mæta á fund byggðaráðs þann 9. febrúar 2017 og í framhaldinu yrði gengið frá útboðsgögnum.'
Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að rekstur á tjaldsvæðinu á Dalvík verði boðinn út. Byggðaráð felur sviðstjóra fræðslu- og menningarsviðs og sveitarstjóra að útbúa útboðsgögn."
Auglýst var eftir rekstraraðila að tjaldvæði og var umsóknarfrestur til 3. maí s.l., sbr. heimasíða Dalvíkurbyggðar
https://www.dalvikurbyggd.is/is/frettir/category/1/auglyst-eftir-rekstraradila-ad-tjaldsvaediSviðstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir þeim umsóknum sem bárust:´
Ólafur P. Agnarsson, kt. 041070-5529 og Guðrún Sveinsdóttir, kt. 210677-5509.
Draumablá ehf., kt. 500216-1660 (Agnes Ýr Sigurjónsdóttir og Gísli Rúnar Gylfason.
Landamerki ehf., kt. 211273-5429.
Til umræðu ofangreint. Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir fundi íþrótta- og æskulýðsráðs sem haldinn var að morgni 11. maí. Niðurstaðan ráðsins var að samþykkt var samhljóða að ganga til samninga við Landamerki ehf.