Opnunartími Íþróttamiðstöðvar - sumar og vetraropnun

Málsnúmer 202412040

Vakta málsnúmer

Íþrótta- og æskulýðsráð - 168. fundur - 07.01.2025

Tekið fyrir minnisblað frá íþróttafulltrúa dags. 09.12.2024.
Íþrótta - og æskulýðsráð óskar eftir ítarlegri upplýsingum um fjöldatölur og nánari útfærslu á fyrirhuguðum opnunartímum.

Íþrótta- og æskulýðsráð - 171. fundur - 04.03.2025

Íþróttafulltrúi ræðir stöðu málsins. Farið yfir mögulegar sviðsmyndir og stöðuna þegar kemur að vöktum starfsfólks með tilliti til styttingu vinnuvikunar og opnunartíma.
Íþrótta- og æskulýðsráð felur íþróttafulltrúa að koma með fullmótaðar tillögur um opnunartíma Íþróttamiðstöðvar á næsta fund ráðsins.