Lagðar voru fram til kynningar reglur Dalvíkurbyggðar um birtingu gagna með fundargerðum. Reglum þessum er ætlað að auka aðgang íbúa Dalvíkurbyggðar að gögnum sveitarfélagsins, fyrirtækjum þess og samtaka sem það á aðild að, sem lögð eru fram í ráðum og nefndum á vegum sveitarfélagsins eftir því sem lög og reglugerðir heimila sem og í samræmi við stefnur Dalvíkurbyggðar. Almenna reglan er sú að birta skal öll gögn á vef sveitarfélagsins sem lögð eru fyrir ráð og nefndir nema erindi frá einstaklingum, þau eru ekki birt nema viðkomandi óski þess. Óheimilt er þó að birta gögn um einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga, bréfaskrif við sérfróða aðila til afnota í dómsmálum, vinnuskjöl og innri minnisblöð, gögn er tengjast málefnum einstakra starfsmanna, gögn sem þagnarskylda gildir um og óski málsaðili sérstaklega eftir að gögn birtist ekki. Ef réttmætur vafi er á því hvort lög heimili birtingu ganga skulu þau að jafnaði ekki birt.