Fræðsluráð

304. fundur 09. apríl 2025 kl. 08:15 - 10:50 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Sigríður Jódís Gunnarsdóttir formaður
  • Benedikt Snær Magnússon varaformaður
  • Snæþór Arnþórsson aðalmaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
  • Emil Júlíus Einarsson varamaður
Starfsmenn
  • Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs
Dagskrá
Jolanta Krystyna Brandt, boðaði forföll og í hennar stað kemur Emil Júlíus Einarsson.

Snæþór Arnþórsson vék af fundi 08:34

Aðrir sem sitja fund: Friðrik Arnarson skólastjóri Dalvíkurskóla og Árskógarskóla,Elvý Guðríður Hreinsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri á Krílakoti, Matthildur Matthíasdóttir, grunnskólakennari, fulltrúi starfsfólks í Dalvíkurskóla. Helga Lind Sigmundsdóttir, deildastjóri í Árskógarskóla. Una Dan Pálmadóttir, fulltrúi starfsfólks á Krílakoti.

1.Niðurstöður úr foreldra - og starfsmannakönnun

Málsnúmer 202103018Vakta málsnúmer

Stjórnendur á leikskólanum Krílakoti, fara yfir niðurstöður úr foreldra - og starfsmannakönnun hjá leikskólanum.
Fræðsluráð þakkar starfsmönnum Krílakots fyrir góða kynningu.
Grunnskólafólk kom inn á fund kl. 09:45

2.Heimsókn verkefnastjóra farsældar hjá SSNE

Málsnúmer 202504012Vakta málsnúmer

Þorleifur Kr. Níelsson, verkefnastjóri farsældar hjá SSNE,kynnir fyrir ráðinu svæðisbundin farsældarráð og starf sitt. Með lögum um samþættingu sem samþykkt voru árið 2022 er kveðið á um svæðisbundið farsældarráð.
Fræðsluráð þakkar Þorleifi fyrir góða kynningu á Svæðisbundnu Farsældarráði.

3.Skóladagatal skólanna 2025 - 2026

Málsnúmer 202501044Vakta málsnúmer

Skóladagatöl skólanna fyrir skólaárið 2025 - 2026 lögð fyrir fund til samþykktar.
Fræðsluráð samþykkir með fjórum atkvæðum skóladagatal Dalvíkurskóla fyrir skólaárið 2025 - 2026. Fræðsluráð samþykkir með fjórum atkvæðum skóladagatal Árskógarskóla fyrir skólaárið 2025 - 2026. Fræðsluráð samþykkir með fjórum atkvæðum að taka skóladagatal Krílakots fyrir á næsta fundi hjá ráðinu.

4.Fjárhagslegt stöðumat fyrir (04) fræðslumál. 2025

Málsnúmer 202403058Vakta málsnúmer

Stjórnendur stofnana fara yfir fjárhagslegt stöðumat fyrir málaflokk 04 - Fræðslumál.
Lagt fram til kynningar

5.Starfsmannamál í leik - og grunnskóla

Málsnúmer 201912084Vakta málsnúmer

Stjórnendur fara yfir stöðuna á starfsmannamálum fyrir næsta skólaár.
Lagt fram til kynningar
Leikskólafólk frá Krílakoti fór af fundi kl. 09:50

6.Vinnuhópur um skólalóð Dalvíkurskóla

Málsnúmer 202502144Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðuna á verkefninu.
Fræðsluráð leggur til með fjórum atkvæðum að vinnuhópur um skólalóð Dalvíkurskóla verði útvíkkaður og vinnuhópurinn taki líka til skólalóðar Árskógarskóla.

7.Skólapúlsinn - niðurstöður úr Dalvíkurskóla

Málsnúmer 201901018Vakta málsnúmer

Friðrik Arnarson, skólastjóri Árskógar - og Dalvíkurskóla, fer yfir helstu niðurstöður á Skólapúlsinum sem er könnun hjá grunnskólanemendum.
Fræðsluráð þakkar Friðriki skólastjóra fyrir góða kynningu á niðurstöðum úr skólapúlsinum. Bæði foreldrakönnun og nemendakönnun.

8.Fyrirlögn PISA 2025

Málsnúmer 202503089Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Mennta - og barnamálaráðuneyti dags. 13. mars 2025.
Lagt fram til kynningar

9.Heimsóknir fræðsluráðs í leik- og grunnskóla

Málsnúmer 201810023Vakta málsnúmer

Fræðsluráð heimsækir leikskólann á Krílakoti.
Heimsókn á Krílakot frestað til næsta fundar hjá ráðinu.

Fundi slitið - kl. 10:50.

Nefndarmenn
  • Sigríður Jódís Gunnarsdóttir formaður
  • Benedikt Snær Magnússon varaformaður
  • Snæþór Arnþórsson aðalmaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
  • Emil Júlíus Einarsson varamaður
Starfsmenn
  • Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs