Félagsmálaráð

208. fundur 09. maí 2017 kl. 08:15 - 10:45 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Hildur Birna Jónsdóttir Varaformaður
  • Elísa Rán Ingvarsdóttir Aðalmaður
  • Rúna Kristín Sigurðardóttir aðalmaður
  • Jóhannes Tryggvi Jónsson aðalmaður
  • Lilja Björk Ólafsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Eyrún Rafnsdóttir Sviðstjóri
  • Þórhalla Karlsdóttir Starfsmaður
Fundargerð ritaði: Þórhalla Franklín Karlsdóttir og Eyrún Rafnsdóttir Þroskaþjálfi og félagsmálastjóri
Dagskrá
Silja Pálsdóttir formaður félagsmálaráðs boðaði forföll og kom í hennar stað Lilja Björk Ólafsdóttir.

1.Félagsþjónustuskýrsla 2016

Málsnúmer 201702086Vakta málsnúmer

Tekin fyrir erindi frá Hagstofu Íslands dags. 6. febrúar 2017 um árlega skýrslu sveitarfélaga um félagsþjónustu á árinu 2016. Einnig var skýrsla lögð fram sem skilað hefur verið fyrir hönd Dalvíkurbyggðar. Fram kemur í skýrslunni að alls er veitt heimilisþjónusta á 51 heimili í sveitarfélaginu og alls fengu 42 heimili fjárhagsaðstoð á árinu.

Lagt fram til kynningar

2.Ábendingar varðandi sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélaga

Málsnúmer 201705079Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Velferðarráðuneytinu dags. 8. maí 2017 þar sem Félags- og jafnréttismálaráðherra beinir því til sveitarfélaga að taka tillit til leiðbeinandi reglna Velferðarráðuneytisins um sérstakan húsnæðisstuðning um að meta skuli þörf fyrir slíkan stuðning á grundvelli framfærslubyrði og félagslegra aðstæðna í stað þess að byggja einungis á hlutlægum tekju- og eignaviðmiðum.

Nú hefur komið í ljós að framkvæmd sumra sveitarfélaga við ákvörðun sérstaks húsnæðisstuðnings er með þeim hætti að sérstakar húsnæðisbætur lífeyrisþega almannatrygginga eru lægri en áður og lækka jafnvel umtalsvert samanborið við þann stuðning sem sveitarfélagið veitti þeim áður með sérstökum húsaleigubótum.



Velferðarráðuneytið bendir á að samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga þarf ákvörðun um sérstakan húsnæðisstuðing að byggjast á heildarmati á aðstæðum umsækjanda, en ekki einungis á hlutlægum tekju- og eignaviðmiðum. Meta þarf hvort um sé að ræða sérstaklega þunga framfærslubyrði eða aðrar félagslegar aðstæður sem leitt geta til þess að þörf fyrir stuðning sé meiri eða minni en hlutlæg viðmið gefa til kynna. Ef þessir þættir eru ekki metnir verður vandséð að sveitarfélag hafi sinnt rannsóknarskyldu sinni við töku ákvörðunar um sérstakan húsnæðisstuðning. Félags- og jafnréttismálaráðherra beinir því þess vegna til sveitarfélaganna að tekið verði til leiðbeinandi reglna velferðarráðuneytisins hvað þetta varðar til þess að þessum markmiðum um heildarmat verði náð.



Lagt fram til kynningar. Félagsmálaráð Dalvíkurbyggðar setti sér reglur í upphafi árs um sérstakan húsnæðisstuðning og sér félagsmálaráð ekki ástæðu til að breyta þeim reglum að svo stöddu.

3.Innleiðing á velferðartækni

Málsnúmer 201705078Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar dags. 8. maí 2017 þar sem Velferðarsvið Reykjavíkurborgar, Öldrunarheimili Akureyriar og Velferðarráðuneytið bjóða til málþings um Connect verkefnið.
Lagt fram til kynningar

4.Segulspjöld

Málsnúmer 201705061Vakta málsnúmer

Þann 1. maí 2017 breytist útivistartími barna og unglinga samkvæmt lögum um barnavernd 92.gr. nr. 80/2002 en þar segir að börn, 12 ára og yngri, megi ekki vera á almannafæri eftir klukkan 20.00 nema í fylgd með fullorðnum. Börn, sem eru á aldrinum 13 til 16 ára, skulu ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22.00, enda séu þau ekki á heimferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Á tímabilinu 1. maí til 1. september lengist útivistartími barna um tvær klukkustundir.

Félagsmálaráð Dalvíkurbyggðar hefur tekið ákvörðun um að gefa öllum grunnskólabörnum í Dalvíkurbyggð segulspjöld um útivistareglurnar.

5.Til umsagnar frumvarp til laga um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna, 436. mál.

Málsnúmer 201704115Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Nefndarsviði Alþingis dags. 28.apríl 2017. Allsherjar - og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar fumvarp til laga um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna, 436.mál. Óskað er umsagnar sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar

6.Til umsagnar tillögu til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017?2021, 434. mál.

Málsnúmer 201704114Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Nefndasviði Alþingis dags. 28.apríl 2017. Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaráætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017-2021, 434.mál. Óskað er umsagnar sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar

7.Til umsagnar frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (innleiðing samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, stjórnsýsla og húsnæðismál), 439. mál.

Málsnúmer 201705024Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Nefndasviði Alþingis dags. 3.maí 2017. Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar fumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (innleiðing samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, stjórnsýsla og húsnæðismál), 439.mál. Óskað er umsagnar sveitafélaga.
Lagt fram til kynningar

8.Til umsagnar frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir, 438. mál.

Málsnúmer 201705023Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Nefndasviði Alþingis dags. 3.maí 2017. Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir, 438.mál. Óskað er umsagnar sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar

9.Til umsagnar frumvarp til laga um orlof húsmæðra (afnám laganna), 119. mál.

Málsnúmer 201703056Vakta málsnúmer

Þórhalla Franklín Karlsdóttir þroskaþjálfi vék af fundi.



Tekið fyrir erindi frá Nefndasviði Alþingis dags. 10.mars 2017. Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um orlof húsmæðra (afnám laganna), 117.mál. Óskað er umsagnar sveitafélaga.
Lagt fram til kynningar

10.Trúnaðarmál

Málsnúmer 201703141Vakta málsnúmer

Trúnaðarmál - 201703141
Bókað í trúnaðarmálabók

11.Húsnæðismál

Málsnúmer 201610024Vakta málsnúmer

Félagsmálaráði Dalvíkurbyggðar barst bréf dags. 23.apríl 2017 frá foreldrum fatlaðra ungmenna í Dalvíkurbyggð þar sem þau óska eftir tímasettri áætlun búsetuúrræða og atvinnumála fatlaðra einstaklinga í Dalvíkurbyggð.
Félagsmálaráð er meðvitað um þörf fyrir búsetuúrræði fyrir fatlaða í Dalvíkurbyggð. Nú þegar er starfandi vinnuhópur á vegum sveitarfélagsins til að kortleggja þörf og hvaða möguleikar eru í stöðunni. Á þessu ári er gert ráð fyrir 20 milljónum í undirbúningsvinnu og er gert ráð fyrir að við gerð fjárhagsáætlunar 2018 liggi fyrir frekari áætlun.



Félagsmálaráð bendir á að undanfarin ár hefur Dalvíkurbyggð verið í fararbroddi með atvinnu fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu og eru eða hafa verið starfandi einstaklingar með skerta starfsgetu á flestum starfsstöðum sveitarfélagsins. Á undanförnum árum hefur félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar útvegað börnum með fötlun á aldrinum 16-18 ára sumarvinnu og greitt launin þeirra þrátt fyrir að ekki sé lagaskylda þar um.

12.Trúnaðarmál

Málsnúmer 201705037Vakta málsnúmer

Rúna Kristín Sigurðardóttir og Jóhannes Tryggvi Jónsson véku af fundi undir þessum lið kl 9:15. Þau komu aftur inn á fundinn að afgreiðslu lokinni kl. 9:28



Trúnaðarmál - 201705037
Bókað í trúnaðarmálabók

13.Trúnaðarmál

Málsnúmer 201705038Vakta málsnúmer

Trúnaðarmál - 201705038

Bókað í trúnaðarmálabók

14.Trúnaðarmál

Málsnúmer 201705041Vakta málsnúmer

Trúnaðarmál - 201705041
Bókað í trúnaðarmálabók

15.Trúnaðarmál

Málsnúmer 201705040Vakta málsnúmer

Trúnaðarmál - 201705040
Bókað í trúnaðarmálabók

16.Trúnaðarmál

Málsnúmer 201705006Vakta málsnúmer

Trúnaðarmál - 201705006
Bókað í trúnaðarmálabók

17.Trúnaðarmál

Málsnúmer 201705039Vakta málsnúmer

Trúnaðarmál - 201705039
Bókað í trúnaðarmálabók

18.Trúnaðarmál

Málsnúmer 201704065Vakta málsnúmer

Trúnaðarmál - 201704065
Bókað í trúnaðarmálabók

Fundi slitið - kl. 10:45.

Nefndarmenn
  • Hildur Birna Jónsdóttir Varaformaður
  • Elísa Rán Ingvarsdóttir Aðalmaður
  • Rúna Kristín Sigurðardóttir aðalmaður
  • Jóhannes Tryggvi Jónsson aðalmaður
  • Lilja Björk Ólafsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Eyrún Rafnsdóttir Sviðstjóri
  • Þórhalla Karlsdóttir Starfsmaður
Fundargerð ritaði: Þórhalla Franklín Karlsdóttir og Eyrún Rafnsdóttir Þroskaþjálfi og félagsmálastjóri