Skólalóð Dalvíkurskóla - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir uppsetningu hjólabrettarampa

Málsnúmer 202503025

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 32. fundur - 12.03.2025

Erindi dagsett 4.mars 2025 þar sem Helga íris Ingólfsdóttir f.h. eigna- og framkvæmdadeildar Dalvíkurbyggðar sækir um framkvæmdaleyfi fyrir uppsetningu hjólabrettarampa á lóð Dalvíkurskóla.
Meðfylgjandi eru afstöðumynd og framkvæmdalýsing.
Skipulagsráð samþykkir erindið og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öll tilskilin gögn hafa borist.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.