Frá fulltrúum kennara og stjórnenda á Norðurlandi eystra; Áskorun til bæjar- og sveitarstjórna á Norðurlandi eystra

Málsnúmer 202410119

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1129. fundur - 31.10.2024

Tekin fyrir áskorun til bæjar- og sveitarstjórna á Norðurlandi eystra, dagsett þann 29. október sl., frá fulltrúum kennara og stjórnenda á Norðurlandi eystra.
Fram kemur m.a. að bréfritarar árétta mikilvægi þess að sveitarstjórnarfólk tali ætíð á jákvæðan og uppbyggilegan hátt um kennara og skólastarf jafnt á opinberum vettvangi sem annars staðar og leggi sig fram við að setja sig inn í skólamál og starfsaðstæður skólafólks.
Lagt fram til kynningar.